31október

nova krap

ég lét undan pressu og skráði mig í nova. aðal ástæðan fyrir því er að ég fleygði rauða samlokusímanum mínum í vegginn og hann er hættur að virka og ef maður skráir sig í nova fær maður fríann nýjann síma (borgar 2000 á mánuði og fær inneign í staðinn). ég set orðið "nýjann" í rauðann lit því ég vil leggja mikla áherslu á það orð því það er aðalmálið í þessari bloggfærslu minni.

ég fekk símann sendann heim í gær og ég reif upp pakkann af miklum spenningi eins og krakki að opna fyrsta pakkann á aðfangadag. þessi fíni svarti sony sími, virkilega töff (3G og læti) lá þarna og beið eftir að vera notaður í fyrsta skipti. já ég set líka orðið "fyrsta" í rauðann lit vegna sömuástæðu. ég opna hann og ætla að setja batteríið í hann og gera hann klárann fyrir notkun þá sé ég ,,Síminn gsm" símakort í honum! halló halló æpi ég upp með mér og set batteríið í og ætla sko að skoða þetta nánar. ég opna hann og sé ýmis persónuleg skilaboð inn í símanum. í símanum mínum! í nýja símanum mínum sem er ekki nyr. þetta er eins og að svindla á fyrsta kossinum. mikið var/er ég svekkt. en ég skemmti mér nú að lesa skilaboð fyrri eiganda sem við skulum kalla Y, nei grín ég ætla ekki að gera þetta að grein sem fer í neyðarlínuna ( ragga dagný erla og arna vita allavegana hvað ég meina). æjh ég ætla ekkert að vera að lengja þetta mikið með arfaslökum bröndurum, þarf líka að hlaupa út í hrísalund því ég var að fá símtal um að systir mín hún katrín ösp hafði gleymt debbanum sínu þar. kemur ekki á óvart enda gískaði ég á það áður en hún sagði mér það. jæja back to the point. ég hringdi í nova í morgun og ég talaði við konu þar nokkrum sinnum í dag og ég fæ nýjann síma sendann heim eftir helgi. og vonandi fæ ég nýjann í þetta skipti. þetta var bara smá ruglingur hjá þeim og hún þakkar kærlega fyrir að ég hafi hringt og látið vita! jeeeh og ekki fekk ég afsökunarbeiðni. neinei það var ekki í boði. ohh  svona rugl

jæja þarf að hlaupa og sækja debetkortið.þetta hefði verið betra blogg ef ég hefði tíma til að fara nánar í smáatriðin eins og hvað stóð í smsnum frá andreu og jóa. hvað vildi mamma Y gera um helgina og fleira gott. eeeen þetta verður að nægja í bili. katrín sauður!

Ella, atvinnulausa
31. október 2008 klukkan 15:35
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
6 athugasemdir
15október

closed off from love, i didn't need the pain

ég labba inn í þröngum svörtum kjól og þurka tárin sem leka niður kynnanar. þegar við stígum inn fyrir hurðina tekur magga í hendina á mér og kristín stendur hinum megin við mig. við reynum að vera eins sterkar og hægt er og löbbum af stað. ég strík um kviðinn á mér til að reyna að róa litlu stelpuna mína sem hefur búið þar inni undan farna 8 mánuði. það er rosalega átakanlegt að þurfa að labba inn kirkjugólfið og horfa á kistuna á hinum endanum. kistuna þar sem ein af okkur lá, elsku besta vinkona okkar, elsku silja mín. við gengum inn og settumst svo á fremsta bekk.

ég hrökk upp í lestinni í gær við þennann hrikalega draum. ég var næstum því búin að upplifa jarðaförina hjá elsku silju minni. ég vaknaði grátandi og var snökktandi það sem eftir var af lestinni. og ég var ólétt.

það er eitthvað við þetta lestarkefi því ég á svo erfitt með að halda mér vakandi. ég er alltaf að sofna og ég er svo stressuð um að ég fari of langt. það mun pottþett gerast fyrir mig áður en ég kem heim

já ég er að koma heim! ég kem heim 21 okr. þetta er komið gott, ég ætla heim til íslands. nú hugsa eflaust einhverjir, quitter beiler blablabla já allt í góðu ég er það bara. ég þarf að koma heim og ég ætla að gera það end of story.
sjit það er svo gott að vera búin að ákeða það að ég er að koma heim. ég get hætt að grenja mig í svefn og ég get hætt að bölva lífinu. nei okei þetta er kannski full dramatískt en ég má vera dramatísk.

ég var í barcelona um helgina. sjitafokkingfokk vá það var geðveikt (okei sorry hvað ég blóta mikið núna en ég er dramatísk í dag svo bloggið verður bara í stíl við það, ýktar lískingar og fl.) ég kom til elsku vinkvennana minna á fimmtudagsmorguninn og knúsaði þær og borðaði með þeim brauð í ofni. svo fóru þær í skólann og á meðan lagði ég mig bara og hafði það kósý. það var svo gott að vita að innan skams kæmu þær aftur og ég gæti aftur fengið knús. svo komu þær heim og við elduðum okkur faitas með kjúkkling. það var mjög gott og svo fengum við okkur nokkra öllara með og hlustuðum á bleeding love. sem er bara klárlega lag ferðarinnar. horfðum á so you thank you can dance dans með þessu lagi og váh ég fæ bara gæsahúð við að hugsa um það. ekkert smá flottur ástartilfinningardans. það var svo nokkrum sinnum í viðbót horft á dansinn og hlustað á lagið nokkrum sinnnum í viðbót. við fórum svo á club sem kallast living og það var alveg fáranlega dýrt að kaupa ser eitthvað á barnum þarna sov ég sleppti því eiginlega alveg. þar kynnusmt við ýmsu fólki í alskonar litum og gerðum. á föstudaginn gerði ég ekki margt. svaf bara lengi og var að tjilla á brókinni þangað til stelpunar voru búnar í skólanum. fórum það kvöld í þakparty og fórum svo á bar. ég fór fljótt heim því ég lennti í smá óhappi sem ég hef ákveðið að ræða aldrei framar.  laugardagurinn var svo bara kósý. vorum bara að kúra og knúsast og leika og uppi á þaki að lesa bók. svo fórum við aftur á djammið á laugardaginn og skelltum okkur á þennan skemmtiega skotbar sem heitr el cato de negro held eg og þar voru hægt að fá mörg hundruð skot og bara á 2 evrur og þetta voru engin krappý skot. þetta var algjört ævintýri að fara á þennan bar og eitthvað sem allir verða að prófa ef þeir fara til barce. svo vorum við bara komnar snemma heim því við urðum fyrir áreiti. það var pólverji sem elti okkur út um allt og var búin að safna liði til að nauðga mér og blablabla. ojh við vorum skíthræddar og töluðum við lögguna og fórum svo bara upp í taxa og heim! þetta var samt bara eins og í bíómyndum hann var svo mikið kríp. þegar við vorum komnar í leigubíl þá læstum við öllu og bara aafstað! og hann kom og barði á rúðuna. gott að vera kominn inn í bíl og vera nokkuð öruggur svo ég gaf honum puttann. ferðin var alveg frábær í allastaði

jæja ég hlakka til að koma heim. góða nótt
15. október 2008 klukkan 21:59
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
12 athugasemdir
06október

,,I want to throw my arms around him, Kiss him, hug him, kiss him, hold his tight "

jesús. jesús. ég var að koma heim úr, jah segjum furðulegustu sundferð allra tíma. jesús. jæja ég ætla að segja ykkur frá henni.
ég ákvað í gærkvöldi að skella mér í sund eftir skóla því að bakið mitt er að gera útaf við mig. ég labbaði frá lestarstöðinni og að sundlauginni og var með allt dótið mitt með mér. þar sem þetta er alveg fáranlega dýr sundlaug þá gerði ég nú bara ráð fyrir að það væru læstir skápar þarna. Já ég borgaði fokking 5 evrur til að fara í sund og eru það litlar 800 íslenskarkrónur. ég borgaði en átti þó erfitt með að sleppa seðlinum. ég flýtti mér inn og sá þar skáp og setti allt dótið mitt inn og klæddi mig úr. En svo sá ég að það var enginn lás. ég fór til sundlaugarkonunar og spurði hvort ég gæti fengið lykil og hún bara noonono. ég bullaði eitthvað á spænsku. ég hlustaði vel og reyndi að fylgja henni eftir. en þar sem spænsku kunnattan mín er mjög takmörkuð þá gekk það ekki eins vel og ég vonaðist til. hún tók allt dótið mitt úr skápnum og rétti mér það aftur og labbaði svo í burtu. ég var við það að fara að gráta og byrjuð að klæða mig í aftur. ég bara skildi ekki hvar ég ætti að geyma dótið mitt. konan kom svo aftur og núna var fullorðin kona með henni sem var líka á leiðinni í sund. hún tók í hendina á mér og dró mig á eftir sér. svo stoppuðum við á hinum endanum og þar rendi hún frá peysunni og sýndi mér að hún væri í sínum sundbol. svo ég klæddi mig úr og fór í minn sundbol. mikið var þessi kona elskuleg og ég vildi að ég hefði skilið hana því hún hætti ekki að tala við mig. svo setti hún allt mitt dót í töskuna mína og tók aftur í hendina mína. hún leiddi mig í sturtuklefann og áður en ég vissi af var hún búin að setja á MIG sundhettu og gleraugu. já ég vissi ekki lengur hvort ég ætti að hlægja eða gráta lengur. það var nú styttra í hláturinn og ég þakka guði fyrir það að það voru engnir speglar á leiðinni út í laug. konan sýndi mér það að það er best að geyma dótið á sundlaugarbakkanum. Svo sagði hún mér að koma með sér og þar kynnti hún mig fyrir sundkennar sem var þarna. og allt samtalið fór fram á spænsku svo ég skildi ekki mikið. Náði því  að hann var 25 ára og hét Javer eins og svo magir hér. og hann var mjög flottur. ekki gram af fitu á öllum líkananum og ég stóð þarna fyrir framan hann, á sundbol með sundhettu og sundgleraugu. jesus aldrei grunaði mig að ég myndi lenda í þessum aðstæðum, og + það var sundhettann húðlituð, já mér leið eins og ég hefði ekkert hár. þegar ég hélt að þetta yrði ekki verra þá sparkaði ég óvart í rassinn á sundkennaranum. Flott

ég held ég fari ekki aftur í sund.

skólinn er byrjaður á fullu og mér líkar nokkuð vel í honum. það er ógeðslega leiðinlegt að ferðast í klukkutíma áður en ég loksins kemst á áfangastað, það reyndar kom sér vel í morgun því sluxinn ég var auðvitað ekki búin að læra heima svo ég dundaði mér við það á leiðinni . í hvert skipti sem ég fer í lestina koma menn upp að mér til að spjalla. flestir til að bjóða mér á deit og flestir frá nígeríu. nú kemur hringurinn sem katrín fekk í fermingargjöf og ég stal frá henni að góðum notum. sýni hann og segi ,, sorry im not available" eða hvenrig sem það er skirfað. en núna á föstudaginn þá var þetta öðruvísi. han ætlaði bara ekki að fara. og ég var nú orðin pínu smeik og starði á fulloðinn mann sem sat ská á móti mér og vonaðist til þess að hann kæmi mér til bjargar ef hann myndi gera eitthvað við mig þessi nígeríu maður. ég sagði honum að ég væri gift og ég hefði engann áhuga á að fara á deit með honum. áður en ég vissi af var hann byrjaður að kalla mig rasista og að ísland væri rasistapakk. þessir nígeríumenn eru svo ágengur, ahh kannski er ég rasisti:O

ég er að fara til barcelona á fimmtudagsmorguninn. ég get ekki beðið! vá að fara héðan og vera frá krökkunum í 5 daga. vaá það verður geðveikt. knúsa stelpunar mínar og drekka með þeim og djamma. váá. ÞAÐ VERÐUR GEÐVEIKT:D

ég sakna íslands, þó það sé kreppa
06. október 2008 klukkan 19:03
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
18 athugasemdir
02október

my dream is to fly..

huston, we have a problem. já það er rétt. það er komið upp vandamál sem ég veit ekki hvenrig ég á að leysa. ég er byrjuð í skólanum og ég hreinlega veit ekki hvenrig ég á að klæða mig. það er svo skítkallt hérna á morgnana að ég þarf að vera almennilega klædd en það er svo heitt á daginn að það er ekki hægt að vera í alvöru fötum. ég klæddi mig í gallabuxur, langermabol, fór í cintamanivestið mitt og vetlinga. ég var að frjósa í lestinni og kúrði mig inn í dúnvestið. þegar ég kom úr lestinni sá ég að metroinn var kominn og ekki stoppar hann lengi svo ég spretti úr spori og trauð mér inn. þá fóru hlutinir að versna því að það var svo troðið og mér var heitt eftir sprettinn og ekki gat klætt mig úr fötunum þarna í neðanjarðarlestarkerfinu. eftir það ég var mér heitt og ég var sveitt og trauð vestinu ofan í töksuna mína og var með úttroðna tösku það sem efti var að deginum. var pínu hrædd um að fólk héldi að ég væri að fela líkamsparta. svo hvernig  á ég að klæða mig?

okei, ef þetta væru mínar helstu áhyggjur og vandamál þá væri lífið draumur

fyrstu skóladagurinn var nokkuð góður en auðvitað þufti ég að lenda í veseni. ég var ekki skráð í bekkinn og hvergi fannst neit um það að ég væri búin að skrá mig í skólan og núna var orðið fullt. just my luck?  en eftir korters bið þá fann kona miða með nafninu mínu á og náði að troða mér inn í einn hópinn. eg kom þa of seint inn í bekkinn og settist aftast á milli tveggja drengja. Igor og Alexander. þeir eru báðir frá þyskalandi og igor þóttist vita allt. ég sver að hann er búinn að læra spænsku og er bara að taka þessa tíma til að fá smá egoboost. alveg pottþett. og svo var alexander í jakkafötum, greinilega fleiri sem eru að díla við overdressed vandamál herna úti.

pikkup línur eru lame. en vá þær eru eiginlga of fyndnar. ég er alltaf að koma upp með einhverjar góðar og vá mér finnst ég vera hilarious. aldrei á ég eftir að hitta þessa straka aftur svo ég verð bara að nota þær og skemmta sjálfum mér. can you give me little sugar, sugar. you should not play whit the fier, mr fierman. og fleiri góðar. kannski var þetta bara svona you had to be there og ég vildi óska þess að gengið mitt hefði veirð með til að sjá hvað ég var fyndin. (vá ég er að hlægja upphátt núna, það þarf lítið til að skemmta mér þessa dagana)

í gær voru 2 konur myrtar hér í spáni. ekki á sama tíma eða ekki sami morðinginn. en önnur kona var myrt inn í sex shop og hin var afhöfðuð. já nú skiljiði kannski afhvejru ég var hrædd um að vera grunuð um að vera með líkamsparta í töskunni.

í næstu viku fer ég til barcelona að hitta stelpunar. omg ég er svo spennt. ég eiginlega ræð ekki við mig. ég er með svona fiðrildi í maganum sem ég fá mig til að brosa. ætla að kaupa mér flug á milli því að það tekur svo fáranlega langann tíma að fara emð lest og það er ekkert mikið ódýrara. svo ég flýg til barce eftir viku. já fokking viku!! dagga, ragga, erla og arna ég er að koma. eins gott að þið veðrið búnar að henda hvítvísflösku(m) í kælinn því það verður drukkið og dansað og grátið og knúsast og sungið. 

ég kveð með ást í hjarta.

02. október 2008 klukkan 15:22
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
9 athugasemdir
29september

um nćtur finn ég fyrir ţér ţú hvíslar ađ mér ,,hjartađ mitt ţađ slćr í takt viđ ţitt"

já það er komið að því. ég keypti mér sundbol. skil samt ekki afhvejru það er ekki í tísku á íslandi því ég verð nú bara að segja eins og er að ég er ansi heit í honum. En ég viðurkenni samt að ég hefði nú valið mer bikiní ef það hefði verið í boði. ansalegt með spán að nú er sko kominn vetur og þá eru sumarvörur ekki seldar og þar á meðal bikiní. En ég er búin að finna mér sundlaug sem ég ætla að fara að synda í og koma mér í form þannig. reyndar er það algjört rán að fara í sund því það kostar fokking 5 evrur að fara í sund! oooog 78 evrur að kaupa 20 tíma kort. Halló! ég ætla að athuga hvort ég geti ekki bara skráð mig í sundfélagið og þá fæ ég þetta eitthvað ódýrara. hvað geriri maður ekki fyrir peninga? á þessu tímapunkti er fátt sem ég myndi ekki gera fyrir peninga.

pringles og kók er svo gott combo. ég held ég gæti lifað á því. keypti mér þannig á laugardaginn og er núna eitthvað að jappla á pringlesinu. þrái samt að fá kók sopa með. þegar ég fór var eg alveg viss um að ég myndi sakna íslenska kóksins og íslenska vatnsins en veistu það er ansi fljótt að venjast. hér drekkum við alltaf bar aúr krananum svo það er alveg allt öðruvísi og fyrst fannst mér eins og ég væri bara að drekka sundlaugarvant. en núna finnst mér það bara betra en vatnið úr flöskunum. og kókið, fiiine..

það hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast. bæði gott og slæmt. ég er byrjuð að ná betur til stelpnana og það er alltaf mjög gaman hjá okkur:) erum duglegar að fara út að leika og svo í gær þegar það var rigning þá vorum við bara inni og ég kenndi þeim supermann dansinn. (klappa saman lófunum,sofa,  vinka höndunum, húkka bíl, fara í göngutúr, syndaskriðsund, skella sér á skíði, spreyja undir hendunar, sauma í, hringja bjöllum okeeei, gefa fingurkoss, greiða hárið, SUPERMAAAAN) þið vitið.  það gjörsamlega sló í geng hjá núríu. versta er að núna er bara nonstopp superman dans. sambandið milli mín og Mar er samt ekki voðalega gott. en ég vona að það lagist því ef það gerir það ekki þá er ég bara að koma heim. það er mjög erfitt að búa með konu sem þolir mann ekki. eða allavegna fer ég i taugarnar á henni sov ég er alltaf á tánum þegar ég er í kringum hana. reyni að sína mínar bestu hliðar:D

Helgin var skemmtileg. eiginlega bara mjög skemmtileg. á föstudaginn fórum við þórdís og arna  út að borða í miðbænum og fengum okkur nautasteik sem var mjög góð. svo fór þórdís bara aftur til alcalaa en ég og Arna ákvaðum að setjast inn a pub og fá okkur einn öl. sem urðu aaðeins fleiri en þeir áttu að vera. ástæðan fyrir því var held ég að við kynntumst 13 mönnum frá bretlandi sem voru í steggjaferð. og það var ógeðslega gaman að spjalla við þá. vá hvað breskurhreimur er flottur. við spjölluðum við þá það sem eftir var af kvöldinu og sýndum þeim burbancafe sem er mjög skemmtilegur klúbbur.

Daginn eftir fórum við svo í WB skemmtigarð. við vorum reyndar mjög óheppnar þennann dag. við lögðum af stað frá örnu rúmlega 11 og við vorum komnar í fyrsta tækið 16:15!! við misstum af lestum, já í fleirtölu, og ég veit ekki hvað og hvað. endalaust að bíða. en við fórum í 4 tæki þar á meðal 3 geðveika rússíbana. og svo fegum við okkur að borða crappí mat. en það er nú varla hægt að sleppa að segja ykkur frá því að við sáum bara life gayporn þarna bara á staðnum. já þetta var klukkan 17 á laugardegi. allt morandi í litlum krökkum og það voru tveir karlmenn að kela á fullu á næsta borði við okkur. og svo eftir smá stund beygði annar sig niður og fór að totta hinn! HALLÓ ég eiginlega vissi ekki hvert ég ætlaði. ég var svo hneygsluð. horfði i kringum mig og það eina sem ég sá var fjölskyldufólk!  ég og arna horfðum á það mjög hneygslaðar og eftir smástund stóðu þeir upp og fóru. með alveg dúndrandi standpínu! djíses. ég er samt búin að vera svo hissa hvernig kærustupör eru hérna. alltaf að kela, þó þetta hafi verið það allra grófasta sem ég hef séð hérna úti. en samt er fólk alveg að káfa á hvor öðru og kyssast (eiginelga frekar bara í hálskyrtlaleikjum, alveg að éta hvort annað). aldrei myndi ég vera svona. bara hvar sem maður er. á leikvellinum, í búðinni, í lestinni, í tívolíbiðröðum. það var par fyrir framan okkur og við biðum í klukkutíma til að komast að og það var í sleik allann tímann. og þau komu ekki upp til að anda. það þarf vissa tækni til að ná þessu held ég.

á þessum þrem vikum sem ég hef verið ég hef ég sitt lífið mitt um 5 ár vegna óbeinna reykinga. ojh það reykja allir hér. það má allstaðar reykja og það reykja allir ofan í mann. það er reykt hérna heima og alltaf þgar ég fer á leikvöllinn þá ef verið að reykja. ég er bara komin með ógeð af þessari stybbu. fötin mín anga og ég líka:(ég er ekki að fíla þetta.

æjh ég veit ekki hvað ég á að blogga meir um.

later, Ella

p.s eru þið ekki að grínast með grey's anatomy. djöfull var fyrsti þátturin góður. ég bíð spennt eftir næsta:D

p.s. 2 nýjar myndir á facebook http://www.new.facebook.com/photos.php?id=615265525#/album.php?aid=162467&id=615265525
29. september 2008 klukkan 10:41
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
14 athugasemdir
24september

Both a little scared, neither one prepared

lífið hér í madrid hefur ekki verið það skemmtilegast í þessari viku. ég sakna allra voðalega mikið og finnst allt vera miklu skemmtilegra heima. en þetta er víst partur af þessu öllu. ég vissi það þegar ég skráði mig í þetta að það yrði erfitt fyrst en svo myndi þetta lagast. ég bíð eftir því.

ég og arna skelltum okkur á djammið á laugardaginn og það var mjög gaman:) nema það að ég var að deyja úr þreytu. var að vinna frá 8 - 8 og svo fór ég beint að gera mig ready fyrir djammið. svo tölti ég af stað í lestina um 10 og í lestinni vakti ég mikla athygli. já hér fæ ég sko mikla athygli frá hinu kyninu. svo þegar ég kom uppp úr lestarkefrinu og var að bíða eftir örnu þá kom svartur gaur strax upp að mér og sagði : ,, i can see you are not spanish" noshit? er ég ekki pínulítið með dökka húð, dökk augu og dökkt sítt har? ég tók upp síman og byrjaði að reyna að hringja í örnu. en hún var ennþá í lestinni. en til allra hamingju hringdi hún eftir smástund og sagðist vera komin. hann var frá nígeríu (ragga is it your guy?) og vildi endilega sýna okkur aðalstaðinn og aðalgaurinn í hipphopp bransanum. við ákvaðum að rölta með þeim og sjá þennann stað. þegar við komum að þessum stað þá kynnti hann okkur fyrir dj og eigandanum af staðnum. djíses bar strax komnar með samböndin skiluru. okkur leist ekkert á þetta svo við fórum en við vitum allavegana núna hvar þessi "heiti" er. við tókum bara rölt um madrid og drukkum gosbjóra. :P svo gerðist nú svoldið sem bara mer tekst að gera. við vorum að labba milli tveggja veitingahúsa og það var svona ristarhlið í jörðinni. og ég varð að labba yfir það. neinei þegar ég var komin í miðjuna á því þá var þetta svona gufuloftdææmi frá veitingahúsinu og það kom upp loft af miklum krafti. þetta var eins og í bíómynd. blái kjóllinn minn sem er bara þröngur yfir brjóstinn fauk upp fyrir andlitið. ég er að reyna að hafa stjórn á þessu, öskrandi með hárið beint upp og já rassinn út í loftið. ooog bara að minna ykkur á að þetta var á milli tveggja veitingahúsa og það var sko nóg af fólki þar og allir voru að hlægja af mér. jesús. ég hljóp í burtu en svo bara dó ég úr hlátri sjálf. ég helt é gmyndi ekki ná andanum af hlátri. þoli ekki hvað ég er óheppin. svo fundum við mjög skemmtilegann stað þar sem svooo heiitr gaurar voru að vinna. nammi nammi! allir geðveikt massaðir. við náðum fljótt þeirra athygli og þeir komu til okkar og sögðu að við gætum fengið okkur skot með þeim whenever. og við gerðum það nokkrum sinnum:P svo var einn þeirra (sætasti) að tala við mig og hlét eitthvða svona utan um mig og svo allt í einu fóru hini að hlægja og ég leit við þá voru þeir búnir að girða niðrum hann. haha svo hann stóð þþarna bara á sprellanum hahah. svo þegar kvöldið var á enda og það var veriðað loka staðnum fóru þeir upp á svið og strippuðu og undir var ,, sexbom sexbom..." svo var bara drifið sig í metroið og þar beið efir mér klukkutíma heimför. ojhh..ég hélt ég myndi sofna í lestinni. svo þurfti ég að labba seinasta spölin en ég bara gat það ekki í hælaháu skónum mínum svo ég bara labbaði á tásunum. þegar ég var rétt að vera komin heim steig ég á aðalumferðagötu maurana. ég drap svona 1000 með bera fætinum mínum. það var ógeð. óheppin?

á laugardaginn ætlum við arna að fara í einhvern skemmtigarð því við erum báðar í fríi:) vona að það verði gaman:)

8 okt ætla ég til barcelona og hittta elsku dagnýju mína, ragnhildi yndið mitt, erlu litlu og örnu bráðgáfuðu.  ég hreinlega get ekki beðið eftir að hitta þær og knúsa þær og kúra upp í þeirra rúmmi og allt það:D ætla að vera hjá þeim í 5 daga held ég:D

það er ekki gott veður hér núna. það er alltaf bara rigning og svo þrumur og eldingar á kvöldin. meira að segja dó ein kona í coslada sem er bærinn við hliðina á mér. hún lennti í fljóði og festist undir bíl. greinilega fleiri en ég sem eru óheppnir..

hérna kom blogg handa ykkur. commetið þá!

ég elska þegar núría velur bauty and the beast til að horfa á. ég hef lúmskt gaman af henni


24. september 2008 klukkan 08:18
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
14 athugasemdir
22september

.

mig langar í one way tikked to iceland.
22. september 2008 klukkan 18:39
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
8 athugasemdir
19september

this city's cleared my innocence...:O


hundurinn dísa hefur vakið mikla athygli hér á blogginu og þá frekar neikvæða! þetta litla grey er bráðgáfað. ég fór aftur með hana út að hlaupa a þriðjudaginn og ég ætlaði sko ekki að lenda í því sama og síðast svo ég fór með hana á kúkastaðinn og lét hana sko losa sig almennilega fyrir joggið. ég stóð þarna við hliðina á hringtorgi meðan ég beið eftir henni og dillaði mér við gusgus. mér leið smá eins og ég væri hóra því þær standa þér víðádreif og sérstaklega í kringum hringtorg. alltaf þegar hún kom til baka sagði ég við hana dísa poop og hún fór aftur og reyndi sitt besta. og það sást á henni hvað hún var að reyna sitt besta. svo fórum við af stað og  hún kúkaði ekkert og allt gekk betur fyrir sig núna.

ég er farin að fíla mig nokkuð vel hérna og held ég að aðalástæðan fyrir því er sú að eg er búin að eignast vinkonu hana örnu. það munar svo miklu að geta hitt einhvern og spjallað við og gert eitthvað annað með. núna á maudaginn (held ég) fórum við inn í madrid og fórum í bíó og svo á smá pöbbarölt:) fengum okkur bjór og horfðum a fótboltaleik. það var rosalega upplífgandi að gera eitthvað annað en að hanga hér:)

í gær ákváðum við að fara á fimmtudagsdjamm því ég var í fríi í dag og hún eitthvað lítið að passa. ég var ægilega spennt enda langt síðan ég hef farið eitthvað út:P ég var komin í frí um 3 og skellti mér þá í sturtu, blés á mér hárið og sléttaði, litaði og plokkaði á mér augabrúnirnar og málaði mig voðalega fínt. klæddi mig svo í nýja bleika kjólinn minn og fór í hælaskó. setti upp stóru sólgleraugun og tölti af stað í lestina. ég ákvað að taka með mér ís og þegar ég kom út var smá vindur. mér leið eins og ég væri að leika í ísauglýsingu. labbaði um götur La Garena virkilega overdressed að borða ís og vindurinn lék við nýsléttaða hárið mitt. ég labbaði í takt við gusgus og bílar bibbuðu á mig.  svo þegar ég var kominn í madrid fór ég strax að kaupa mér föt til að skipta. var rosalega overdressd fyrir þetta fimtudagsdjamm. ég keypti mér rauðar þröngar gallabuxur og svartann krúttlegann bol sem minnir mig á söndru því hún er oft í svona bolum. það var gaman á djamminu í gær þó við höfum verið komnar snemma heim til að ná síðasta stætónum til hennar:) ætlum aftur á djammið á morgun og þá verðum við lengur. ætla bara að taka fyrrsta metroinn heim svo ég verð að koma heim svona milli 8 og 9:) hehe ég gisti heima hjá örnu í nótt og það var ótrúlega fínt:) ekkert smá fín hjónin sem hún er hjá og ég sat ein inní eldhúsi með þeim alveg heillengi og spjallaði við þau meðan arna var eitthvað að gera annað hehe en svo fór ég heim um 4 því það var afmælisveisla her og ekki vildi ég nú missa af því:) tók mig ekki nema 2 tíma að fara hérna á milli mín og örnu:)

elsku mamma mín átti afmæli nuna 17 september:D vil óska henni innilega til hamingju með það. vá ég sakna hennar mest í heimi.

ég setti inn myndir á facebook fyrir þá sem vilja skoða:) en ég kann ekki að setja inn myndir hér:/

ég sakna ykkar alveg gríðarlega mikið. lagar að koma heim þó að þetta sé rosalega gaman þá er best að vera heima
19. september 2008 klukkan 20:00
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
10 athugasemdir
13september

Da kedo watashi wa yurusarechau sore wa watashi ga kawaii kara!

þvílík reynsla. núna rétt í þessu var ég úti að skokka og jah hvað skal segja, mér fannst þessi skokk ferð var svo öðruvísi að og síðustu metrana gat ég ekki hugsað um annað en að blogga um hana og er hún því ástæðan fyrir þessu bloggi. kannski finnst ykkur þetta ekkert merkilegt en nú þegar ég hef "engann" til að tala við (eða þú skilur) þá hugsa ég rosalega oft um að blogga um það sem ég er að upplifa til að segja mínu fólki frá því, en svo þegar ég kem heim nenni ég því ekki. en ég hef ekkert að gera í kvöld, já ég veit sad, svo ég ætla að blogga.

en jáh. eins og þið vitið á ég oft mjög eriftt með að koma mér að pointinu í söguni og flestir missa áhugann á því sem ég er að segja áður en ég segji það sem ég loksins ætlaði mér að segja. já ég tek alveg eftir því hjá ykkur öllum, líka þér helgi þó þú reynir að fela það vel. einiveis.. ég sagði við mar áður hún fór upp með afmælisbarnið að ég ætlaði út að skokka þegar hún væri búin að svæfa lidiu og ég ætla að taka Dísu með mér (hundinn). Mar sagði að það væri 2 sem ég þurfti að vara mig á og var voðalega alvarleg á svipinn. hún skelfdi mig smá og svo sagði hún. ,,ef það verður ráðist á þig þá skalltu ekki búast við því að dísa verji þig. og hitt þú mátt búast við að þurfa að halda á hundinum heim, hún er ekki í formi" ég hló að henni og tók þessu bara sem gríni og hugsaði allir hundar geta alveg hlaupið smá ca 5 km skok. ég tók með mér ól og 2 kúkapoka svona incase, og sem betur fer. hún var ægilega spennt fyrir að fara út og hoppaði útum allt og hjólp að kúkapleisinu og kúkaði vel og svo þegar ég sagði við hana að koma með mér lengi varð hún eiginlega bara frekar hissa og kunnni EKKI að hlaupa með. ég gargaði stanslaust DISA COME! gat ekkert hlustað almennnilega á my love, justin timberlake fyrir þá sem vitð ekki hver er the ástin í mínu lífi, og ég var nú ekki ánægð með það. svo stoppaði hún og kúkaði aftur fyrir utan veitingastað. svo ég þurfti að fara með hendia í kúkapokann og taka upp kúkinn sem var mjög skrítin tilfinning. ekki eins og þegar ég þurfti að gera það á elliheimilinu. þessi kúkur var miklu harðari og eigilega bara strax kaldur. já okei. ég setti hana í ólina og hljóp áfram. hún varð fljótlega mjög þreytt og ég eftir svona 1/4 af ferðinni var ég farin að draga hana.. ég veit ekki hvort það reyndi meira á mig að draga hana eða hlaupa. þegar ég var komin að mollinu dró hún mig svona út í kannt og kúkaði aftur. í þriðja skiptið já. ég lét það nú vera því þetta var ekki í göngu veginum. svo vildi ég fara að hlaupa til baka en það var eginlega bara ekki séns að fá hana af stað. ég dró greiið hundinn af stað sem var pottþett að hugsa að hann vildi óska þess að ég hefði aldrei komið. ég náði að fá hann til að hlaupa af stað og svo þegar við vorum að vera kominn heim kúkaði hann aftur! halló hversu oft er hægt að kúka á 25 mín? ég kom heim og setti hana i garðinn og hún fekk sér vatn að drekka og lagist beint. alveg búin á því. ég samt lít ekkert á mig í góðu formi en greiið hundurinn really needs to get in some shape.

annars er margt skemmtilegt búið að gerast hjá mér síðan ég bloggaði síðast. eitthvað sem ég ætti miklu frekar að blogga um. eins og í gær þegar ég fór í miðbæ Madridborgar þá sá eg krúttlegustu konu heims, allavegana sem ég hef séð. hún var svona ca 125cm á hæð og var eiginlega brún og var með grátt sítt hár (sem var reyndar ógeðslegt) og svo var hún í svona svartri skykkju. og já hún hafði engar tennur og svona 80 ára eða kannski samt 60, erfitt að gíska á aldur fólks sem hefur ekki farið í sturtu í mörg, mörg ár. svo líka í marid í gær labbaði ég niður hórugötuna og það var allt morandi í þessu.. samt var klukkan bara sovn 4 og ég fór inn í 2 sex shops (sorry mamma og pabbi) bara svona til að skoða allt sem var þarna og inní þessum sex shops voru rúknbásar. 1€ fyrir 3 mínútur og það fylgir klám efni með. þegar ég var þarna inni heyrði ég í einum kalli. mér fannst það mjög ógeðslegt, sá hann sko líka koma út. svo keypti ég mér líka pínu þarna í madrid. ég keypti mér 2 kjóla, buxur og nærfatasett. en ekki hef ég ennþá fundið hin fullkomnu sólgleaugu. svo þegar ég kem heim verð ég komin með sólarhrukkur í kringum augum því ég get ekki keypt mér sólgleraugu, vil ekki kaupa bara einhver það verða að vera einhver sem mér líkar vel við.

sundlaugin í garðinum "mínum" er helvíit fín. að öllu leiti nema einu. hún er stór og fín (svona svipað löng og akureyrarlaug nema bara mjórri) svo er hún ekki neitt djúp svo ég mun ekki drukna þegar ég hoppa útí. ef hún væri djúp væri ég líklegast ekki á lífi því deem hvað hún er köld. ég hoppaði útí hana og ég náði ekki andanum fyrr en ég var komin upp úr vatninu aftur. í alvörunni ég tók vatnsflöskuna mína sem ég tók úr ískápnum fyrir svona korteri tops og helti yfir mig til að hita mig. en ég píndi mig til að synda einar 30 ferðir og lá svo í sólbaði í smástund á eftir. þegar ég kom uppúr var ég eitthvað að tala um þetta þá var mer sagt að hún væri ekki notuð svona seint því að hún er á milli 12 og 15°heit og það er sko ekki fínt. það er stór mínus. já reyndar líka að það á að loka henni á morgun:/

ohh mig langar svo á djammið núna. það er svaka fiesta í madrid miðbænum og núna er ég að hlusta á flugeldasýninguna því klukkan er 00.00 hér út. ástæðan fyrir þessu svaka djammi er það að það er fullt tungl? ég reyndar skil ekki afhverju það er verðið að fanga því? verða ekki allir brjálaðir þá og varúlfar fara á kreik? ég man allavegana þegar ég dagný og ragga fórum að djamma á fullu tungi heima á ak í sumar (eða ég reyndar man ekkki eftir því) og það var ekkert eitthvað svo sniðugt, allir brjálaðir hehe! það er víst alveg stappað núna á djamminu en ég er hér heima því ég þarf að passa kl half 8 í fyrramálið því mar er að fara að vinna og valdi er á djamminu.

æj það er svo margt sem ég gæti sagt hér en ég stór efast um að einhver nennir að lesa þetta allt. en geriði það kommentið því mig langar svo að sjá hverjir eru að skoða bloggið mitt. það gleður mig mikið að sjá þegar bæst hefur við í kommentum..

góða nótt, og hey ef einhver fattar þennann tilil þa er hann skemmtielgur (bannað að googla)

happy birthday lidia litla mín

Ela eins og é ger alltaf kölluð hér
13. september 2008 klukkan 22:05
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
14 athugasemdir
10september

only you can play my heart and do it right

Jæja ég skal blogga smá núna. það er svo margt sem ég hef frá að segja. svo byrjum bara á byrjuninnni.

Helgin var frábær. ég hefði ekki vilja eyða síðustu helginni minni hér á íslandi neitt öðruvísi. Borðaði góðann mat, mikið af nammi og flögum, horfði á grey's og kúrði í geggjað þægilegu rúmmi með helga (sko rúmi með fjarstýringu og nuddi) og svo var held ég toppurinn þegar ég og helgi fórum í bláa lónið. það var æði.
Svona á mánudagskvöldið fór ég að átta mig á því að ég væri að fara. sérstaklega þegar hrabba hringi í mig og sagði að það væri búið að breyta hennar flugi og ég þyrfti að koma heim til Emma og segja bæ við hana og Daniel þar. Helgi skutlaði mér þangað og þá byrjaði ég bara að gráta og ég eiginlega stoppaði ekki fyrr en ég fór í gegnum öryggishliðið. vá hvað mer fannst erfitt að segja bæ svona þegar ég var búin að átta mig á þessu öllu hehe. fannst það voða lítið mál þegar ég var heima því þá fannst mér ekkert eins og ég væri að fara hehe.

Þegar ég kom á flugvöllinn fór ég og keypti mér þessa fínu myndavél, morgunmat og svo keypti ég mér bók til að lesa. já þið lásuð rétt. ég keypti mér bók til að lesa. hún heitir ,,sjortarinn". heitið á henni fannst mér aðlaðandi. hún er mjög spennandi er meira að segja að hugsa um að lesa í henni á eftir. og svo keypti ég mer líka triolade sem er nottla besta súkkulaði í heiminum. borðaði eiginlega yfir mig af því í gær svo mig langar ekki í það í dag. svo fór ég í flugvélina og beygði til hægri eins og maður gerir alltaf en ég fann ekki mitt sæti því það var í röð númer 6 og sætin byrjuðu á röð 9. svo ég fór til konunar og spurði hana út í þetta þá bennti hún mér á þetta fína saga class sæti sem var mitt næstu 3 klukkutímana eða svo. ég var ægilega glöð svo ég settist í þennan lazyboy (eða næstum því) og breyddi yfir mig teppi og knúsaði koddann minn og snökkti smá. svo kom þessi sanni þýski herramaður og settist við hliðina á mér. fyrsta sem hann sagði við mig var ,, are you alright sweety?" og var voðaelga áhyggjufullur á svip. og ég tautaði játandi að það væri í lagi með mig. eftir smástund steinsofnaði og vaknaði ekki fyrr en tvem tímum síðar. þá var herramaðurinn tilbúinn með ýmsar spurningar til mín. svo við spjölluðum saman þangað til við lenntum. það var næs sko. og sov var ég komin til frankfurt. á þessum risaflugvellli og ég fór að rölta um og leita af hliðinu sem ég átti að fara næst í. ég labbaði alveg flugvöllinn á enda og þá fór ég og spurði mann sem var að vinna þarna og sýndi honum miðann. þá voru hliðið við hliðin á hliðinu sem ég lennti á. deem. flugferðin til spánar var ekki alveg jafn næs og fyrri ferðin enda erfitt að toppa hana. en ég var ein í minni röð svo eftir flugtakið setti ég ara ipodinn í eyrun og lagðist útaf. reyndar voru fyrir framan mig alveg brjáluð börn og ég var mjög þreytt á þeim. maðurinn sem sat í röðinni við hliðinni á mér var alltaf að gefa mér einhver tákn um það hvað þau voru pirrandi. svo þegar við lenntum þá kom hann til mín til að spurja mig hvaðan ég væri og ég sagðist vera frá íslandi og hann hafði aldrei heyrt um það. ég sagði bara að það væri eyja rétt hjá norðurpólum. hann trúði því alveg. ég labbaði með honum í gegnum flugvöllinn og kvaddi hann svo þegar ég var að fara að sækja töskunar. hann vildi endilega að við keep in toutch en ég var nú ekki alveg til í það þar sem hann var svona 30 árm eldri með síðar gráar krullur sem voru bara á hliðunum því hann var með skalla. en fínn kall samt sem áður hehe

svo tók fjölskyldan á móti mér og kystu mig á báðar kynnarnar sem er víst siður hér á spáni. og vá stelpunar eru svo fallegar. vá þær bræddu mig alveg um leið. þau eru öll rosalega fín. mér líður strax mjög vel hjá þeim og allt er strax mjög heimilislegt. húsið er mjög flott. er á 4 hæðum og er rosaelga fínt allt. herbergið mitt er geggjað sætt. alveg eins og herbergi sem ég myndi búa til í sims. svo er ég með sér baðherbergi og sem er mjög fínt hehe. svo er herna sætur köttur sem heitir catida og hundur sem heitir dísa. hann fer mikið úr hárunum svo ég er búin að halda mér frá honum.

dagurinn í dag er búinn að ganga vel. er sovna bara aðeins að komast inn í allt hérna. mer fannst svo krúttlegt ð þegar ég kom létu þau mig fá vantsglas til að hafa alltaf með mér og gáfu mer minn eigin sérvettuhring. aldrei hef ég notað svona en mér fannst þetta sætt hehe.

heyrðu í nótt maður. það var brjálað veður. stormur sko. það var þrumur og eldingar og svo kom haglél. en reyndar ekki hagél þar sem ég er en samt hér í madrid.. jeminn..

jæja eg ætla að fara að sofa. klukkan rétt að detta í hálf 1 hér:)

góða nótt elskurnar. :)

10. september 2008 klukkan 22:21
Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
11 athugasemdir

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Elísabet Ţórunn Jónsdóttir
  • Netfang: ellatota@hotmail.com
  • Stađur: Madrid
  • Atvinna: aupair á spáni
  • Hjúskaparstađa: mjög góđ
  • Um mig: menntaskólamćr á leiđ til Madrid
  • Annađ: 0034-626-186347 - spćnskanúmeriđ mitt 00354-616-9570 - íslenskanúmeriđ mitt

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...